Golfmót Landssambands sjálfstæðiskvenna verður haldið fimmtudaginn 23. ágúst á Hamarsvelli í Borgarnesi. Mjög góð þátttaka hefur verið undanfarin ár og því hvetjum við ykkur til að skrá ykkur og ganga frá greiðslu til að tryggja ykkur sæti. Mæting er í Valhöll, Háaleitisbraut og verður haldið áleiðs með rútu vestur í Borgarnes kl. 10.30. Mótið sjálft hefst klukkan 13.00. Við munum bjóða upp á léttar veitingar í rútu og svo verður kvöldverður á Hótel Hamri að loknu móti. Ragnhildur Sigurðardóttir, margfaldur Íslandsmeistari í höggleik og holu keppni og landsliðskona í golfi, verður mótsstjóri í ár líkt og í fyrra. Að vanda eru vegleg verðlaun í boði fyrir kylfinga: o Í punktakeppni sem og höggleik o Nándarverðlaun verða á öllum par þrjú brautum vallarins o Sjálfsstæðissleggjan fyrir lengsta högg o Fugladrottning LS fyrir flesta fugla o Að auki verða nokkrir vinningar dregnir út meðal þáttakenda Skráning telst eingöngu gild hafi mótsgjald, 10.000 krónur, verið greitt inn inná reikning Landssambands sjálfstæðisvenna.Reikningsnúmer: 0334-26-002150 kt: 571078-0159. Loka dagur skráningar er mánudagur 21. ágúst. Að móti loknu móti höldum við á Hótel Hamar þar sem verður léttur kvöldverður og verðlaunaafhending. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, mun stýra gleði kvöldins. Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga skemmtilegan dag með ykkur. Golfnefnd Landssambands sjálfstæðiskvenna
Golfmót Landssambands sjálfstæðiskvenna verður haldið fimmtudaginn 23. ágúst á Hamarsvelli í Borgarnesi.
Mjög góð þátttaka hefur verið undanfarin ár og því hvetjum við ykkur til að skrá ykkur og ganga frá greiðslu til að tryggja ykkur sæti.
o Í punktakeppni sem og höggleik
o Nándarverðlaun verða á öllum par þrjú brautum vallarins
o Sjálfsstæðissleggjan fyrir lengsta högg
o Fugladrottning LS fyrir flesta fugla
o Að auki verða nokkrir vinningar dregnir út meðal þáttakenda
Að móti loknu móti höldum við á Hótel Hamar þar sem verður léttur kvöldverður og verðlaunaafhending. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, mun stýra gleði kvöldins.
Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga skemmtilegan dag með ykkur.
Golfnefnd Landssambands sjálfstæðiskvenna