Kvennamót Dalbúa hafa notið vinsælda síðustu ár, enda allar konur velkomnar. Keppnin er punktakeppni með forgjöf, og spilaðar verða 9 holur (1 hringur). Félagskonur eru hvattar til að fjölmenna og taka með sér vinkonur og aðrar kátar konur. Skráning á golf.is eða í golfskálanum í Miðdal. Allir keppendur verða ræstir út á sama tíma, kl. 10:00, og eru keppendur beðnir að mæta tímanlega. Veglegar snyrtivörur frá Lavera verða veittar í teiggjafir, og fjöldi glæsilegra verðlauna er í boði. verðlaun: Dekur snyrtivörupakki frá Lavera. verðlaun: Glæsilegur snyrtivörupakki frá Lavera. verðlaun: Flottur snyrtivörupakki frá Lavera. Einnig verða veitt verðlaun fyrir lengsta teighögg á valinni braut og fyrir upphafshögg næst holu á par 3 brautum. Konur, njótum dagsins saman í góðum félagsskap! Súpa og léttar veigar að leik loknum á sanngjörnu verði. Mótsgjald 3.500 kr.
Kvennamót Dalbúa hafa notið vinsælda síðustu ár, enda allar konur velkomnar.
Keppnin er punktakeppni með forgjöf, og spilaðar verða 9 holur (1 hringur).
Félagskonur eru hvattar til að fjölmenna og taka með sér vinkonur og aðrar kátar konur.
Skráning á golf.is eða í golfskálanum í Miðdal. Allir keppendur verða ræstir út á sama tíma, kl. 10:00, og eru keppendur beðnir að mæta tímanlega.
Veglegar snyrtivörur frá Lavera verða veittar í teiggjafir, og fjöldi glæsilegra verðlauna er í boði.
Einnig verða veitt verðlaun fyrir lengsta teighögg á valinni braut og fyrir upphafshögg næst holu á par 3 brautum.
Konur, njótum dagsins saman í góðum félagsskap!
Súpa og léttar veigar að leik loknum á sanngjörnu verði.
Mótsgjald 3.500 kr.