Stórskemmtilegt mót með glæsilegum verðlaunum í boði Símans. Leikformið er Texas Scramble deilt með 3, þar sem hámarksforgjöf karla er 28 og hámarksforgjöf kvenna er 34; vallarforgjöf beggja keppenda er lögð saman og deilt í með þremur; keppnisforgjöf liðs getur þó ekki orðið hærri fyrir viðkomandi lið en þess keppanda sem er með lægri vallarforgjöfina (Athugið: Ekki taka mark á forgjöfinni sem birtist við skráningu á golf.is, þar sem hún er ekki í takt við ofangreinda reikniformúlu). Athugið: Ekki er hægt að vinna til verðlauna nema hafa löglega forgjöf. Ræst verður út á öllum teigum kl. 10:00 og eru keppendur beðnir að skrá liðið saman á rástíma (skráning rástíma er þó að eins til skráningar, þar sem allir verða ræstir út á sama tíma). Allir keppendur fá í boði Símans teiggjöf fyrir mót og hamborgara að hætti hússins að móti loknu. Verðlaun: - 3. sæti: Vegleg verðlaun í boði Símans, en auk þess verða veitt verðlaun fyrir lengsta teighögg karla og kvenna á valinni braut og fyrir upphafshögg næst holu á par 3. brautum vallarins. - Loks verður veglegur vinningur dreginn úr ÖLLUM skorkortum keppenda. Mótsgjald er 4.000 kr. á hvern þátttakanda, en þar sem um styrktarmót Dalbúa er að ræða þá er keppendum frjálst að greiða meira en mótsgjaldið. Þá býðst fyrirtækjum að styrkja klúbbinn og greiða 10.000 kr. fyrir keppnislið í sínu nafni. Allur ágóði af mótinu rennur til uppbyggingar á vellinum Í Miðdal og til að styrkja starfsemi klúbbsins.
Stórskemmtilegt mót með glæsilegum verðlaunum í boði Símans.
Leikformið er Texas Scramble deilt með 3, þar sem hámarksforgjöf karla er 28 og hámarksforgjöf kvenna er 34; vallarforgjöf beggja keppenda er lögð saman og deilt í með þremur; keppnisforgjöf liðs getur þó ekki orðið hærri fyrir viðkomandi lið en þess keppanda sem er með lægri vallarforgjöfina (Athugið: Ekki taka mark á forgjöfinni sem birtist við skráningu á golf.is, þar sem hún er ekki í takt við ofangreinda reikniformúlu).
Athugið: Ekki er hægt að vinna til verðlauna nema hafa löglega forgjöf.
Ræst verður út á öllum teigum kl. 10:00 og eru keppendur beðnir að skrá liðið saman á rástíma (skráning rástíma er þó að eins til skráningar, þar sem allir verða ræstir út á sama tíma).
Allir keppendur fá í boði Símans teiggjöf fyrir mót og hamborgara að hætti hússins að móti loknu.
Verðlaun:
Mótsgjald er 4.000 kr. á hvern þátttakanda, en þar sem um styrktarmót Dalbúa er að ræða þá er keppendum frjálst að greiða meira en mótsgjaldið. Þá býðst fyrirtækjum að styrkja klúbbinn og greiða 10.000 kr. fyrir keppnislið í sínu nafni.
Allur ágóði af mótinu rennur til uppbyggingar á vellinum Í Miðdal og til að styrkja starfsemi klúbbsins.