Mótið er punktamót m/forgjöf þar sem hæst gefin forgjöf er 24 hjá körlum og 28 hjá konum Karlar spila af gulum teig og konur af rauðum. Þeir karlar sem eru 70 ára og eldri mega spila af rauðum teig og reiknast þá forgjöf miðaða við þá teiga. Verðlaun eru eingöngu veitt þeim sem hafa löglega forgjöf samkvæmt vef GSÍ. Skráningu á FRAM Open lýkur miðvikudaginn 8. ágúst. Núna eru um 20 sæti laus, því er um að gera að drífa sig. FRAM Open hefur í gegnum tíðina einkennst af gleði, glaumi og snilldartilþrifum lærðra sem leikinna. Mótið er opið öllum FRÖMurum og velunnurum félagsins. Stemmningin sem skapast hefur á FRAM Open gerir það að verkum að gefa mætti út ríkisábyrgð fyrir skemmtilegum félagsskap en mótið tókst frábærlega í fyrra. FRAM Open 2018 fer fram á golfvellinum Öndverðarnesi föstudaginn 10. ágúst og hefst klukkan 13:00. Hyggilegt er að þátttakendur séu mættir á svæðið u.þ.b. hálftíma fyrr. Ræst verður út á öllum teigum kl. 13:00. Skráning er hafin í síma 533-5600 eða á ludvik@fram.is Athugið að það sem koma þarf fram í skráningu er:Nafn leikmannsKennitala leikmannsForgjöf leikmanns Ósk um að leika í holli með ? Netfang Keppnisgjaldið er kr. 8.500.- og þarf að greiða við skráningu. Innifalið er mótsgjald, teygjöf og matur eftir mót. (lambalæri með „alles“) Mikilvægt að allir skrái sig snemma því mótið var fullt í fyrra. Knattspyrnufélagið FRAM Skráning í síma 533 5600 hjá Lúðvík
Mótið er punktamót m/forgjöf þar sem hæst gefin forgjöf er 24 hjá körlum og 28 hjá konum
Karlar spila af gulum teig og konur af rauðum. Þeir karlar sem eru 70 ára og eldri mega spila af rauðum teig og reiknast þá forgjöf miðaða við þá teiga.
Verðlaun eru eingöngu veitt þeim sem hafa löglega forgjöf samkvæmt vef GSÍ.
Skráningu á FRAM Open lýkur miðvikudaginn 8. ágúst. Núna eru um 20 sæti laus, því er um að gera að drífa sig.
FRAM Open hefur í gegnum tíðina einkennst af gleði, glaumi og snilldartilþrifum lærðra sem leikinna. Mótið er opið öllum FRÖMurum og velunnurum félagsins. Stemmningin sem skapast hefur á FRAM Open gerir það að verkum að gefa mætti út ríkisábyrgð fyrir skemmtilegum félagsskap en mótið tókst frábærlega í fyrra.
FRAM Open 2018 fer fram á golfvellinum Öndverðarnesi föstudaginn 10. ágúst og hefst klukkan 13:00. Hyggilegt er að þátttakendur séu mættir á svæðið u.þ.b. hálftíma fyrr. Ræst verður út á öllum teigum kl. 13:00.
Skráning er hafin í síma 533-5600 eða á ludvik@fram.is
Athugið að það sem koma þarf fram í skráningu er:Nafn leikmannsKennitala leikmannsForgjöf leikmanns Ósk um að leika í holli með ?
Netfang
Keppnisgjaldið er kr. 8.500.- og þarf að greiða við skráningu. Innifalið er mótsgjald, teygjöf og matur eftir mót. (lambalæri með „alles“)
Mikilvægt að allir skrái sig snemma því mótið var fullt í fyrra.
Knattspyrnufélagið FRAM
Skráning í síma 533 5600 hjá Lúðvík