Opna Nes mótið verður haldið laugardaginn 28 júlí að Nesi í Reykholtsdal. Mótið er opið öllum og hefst kl.10:00, ræst verður út af öllum teigum samtímis. Fyrirkomulagið er punktakeppni og verða veitt verðlaun fyrir 1. 2. og 3. sæti og nándarverðlaun fyrir næst holu á 5. flöt og næst holu í öðru höggi á 8. flöt. Fyrir félagsmenn er mótið jafnframt meistaramót Skriflu og fyrirkomulagið höggleikur án forgjafar. Mótsgjald er kr. 3.500 og er innifalið súpa og brauð í hléi eftir fyrri 9. Í hléinu fer fram sérstakur atburður, þá verður vígt verndartröll golfvallarins í Nesi. Listaverkið er eftir Pál Guðmundsson á Húsafelli. Þennan sama dag er einnig sveitamarkaður í Nesi. Skráning fer fram á golf.is og í síma 435-1472
Opna Nes mótið verður haldið laugardaginn 28 júlí að Nesi í Reykholtsdal. Mótið er opið öllum og hefst kl.10:00, ræst verður út af öllum teigum samtímis.
Fyrirkomulagið er punktakeppni og verða veitt verðlaun fyrir 1. 2. og 3. sæti og nándarverðlaun fyrir næst holu á 5. flöt og næst holu í öðru höggi á 8. flöt.
Fyrir félagsmenn er mótið jafnframt meistaramót Skriflu og fyrirkomulagið höggleikur án forgjafar.
Mótsgjald er kr. 3.500 og er innifalið súpa og brauð í hléi eftir fyrri 9.
Í hléinu fer fram sérstakur atburður, þá verður vígt verndartröll golfvallarins í Nesi. Listaverkið er eftir Pál Guðmundsson á Húsafelli.
Þennan sama dag er einnig sveitamarkaður í Nesi.
Skráning fer fram á golf.is og í síma 435-1472