Þátttökugjald er 9.000 kr. fyrir almenna þátttakendur (mótsgjald, rúta báðar leiðir og kvöldmatur) og 7.500 kr fyrir félagsmenn FVH.
Þetta er léttleikandi mót þar sem bæði lág- og háforgjafamenn geta spilað. Mótið er punktakeppni með forgjöf, keppt er í karla, kvenna og B flokki (forgjöf 20+, en hámarks forgjöf er 28).
Mótið er annálað fyrir fjölda og glæsileika verðlauna – þannig að þetta er mót sem enginn félagsmaður FVH má láta fram hjá sér fara. Öllum er velkomið að taka þátt.
Skráning á golfmót FVH 2018 á golf.is og í gegnum Facebook.
Skráning í rútu sendist á fvh@fvh.is
Greitt er á staðnum nema óskað verði eftir greiðslukröfu sem myndast þá í banka.
Hlökkum til að sjá sem flesta !
Afskráning í gbgolf@gbgolf.is