Upplýsingar um mót Eitt skemmtilegasta mót sumarsins verður haldið laugardaginn 27. maí. Um er að ræða hjóna og parakeppni GKG. Leikfyrirkomulagið er betri bolti m/forgjöf þar sem betra skor liðsins telur á holu, þetta er þó punktakeppni og þannig telja punktar þess sem fékk hærri punkta á holu. Um er að ræða innanfélagsmót en makar úr öðrum klúbbum eru þó velkomnir. Ath að þeir sem spila saman þurfa að skrá sig hlið við hlið í rástíma. Ath. að við skráningu í mótið skal gætt þess að ekki er hægt að nota golf.is til þess að halda utan um skráningu á liðunum. Því eru pör beðin um að skrá sig "lóðrétt" saman svo að liðaskipanin haldist út mótið. Þannig eru fjórir saman í holli, fyrstu tvö nöfnin gera þá eitt lið og síðustu tvö eru þá sér lið. Ef einhver vandamál verða ekki hika við að hringja í proshop eða senda tölvupóst á yngvi@gkg.is Þar sem mótið er hjóna og para keppni, þá þarf að skilgreina betur hvað er átt við hvenær fólk er par. Par þarf ekki endilega að vera kærustupar. Aðalatriðið er að parið séu góðir vinir, hafi skemmtun af því að spila golf saman. Félagsmenn geta tekið með sér liðsfélaga sem er ekki innan klúbbsins. Verðlaun: 1. sæti 2 x 25 þús króna inneign á Ecco skóm og glaðningur frá Ölgerðinni 2. sæti 2 x 10 þús króna inneign hjá N1 og glaðningur frá Ölgerðinni 3. sæti Glaðningur frá Ölgerðinni Nándarverðlaun á öllum par 3 holum og annað höggið á 18. holu. Hámarks forgjöf karla er 24 og hámarksforgjöf kvenna er 28. Verð á kylfing kr. 5.800,- innifalið í verðinu er eðalkvöldmatur frá Mulligan teyminu, forréttur og aðalréttur.
Upplýsingar um mót
Eitt skemmtilegasta mót sumarsins verður haldið laugardaginn 27. maí. Um er að ræða hjóna og parakeppni GKG.
Leikfyrirkomulagið er betri bolti m/forgjöf þar sem betra skor liðsins telur á holu, þetta er þó punktakeppni og þannig telja punktar þess sem fékk hærri punkta á holu. Um er að ræða innanfélagsmót en makar úr öðrum klúbbum eru þó velkomnir. Ath að þeir sem spila saman þurfa að skrá sig hlið við hlið í rástíma.
Ath. að við skráningu í mótið skal gætt þess að ekki er hægt að nota golf.is til þess að halda utan um skráningu á liðunum. Því eru pör beðin um að skrá sig "lóðrétt" saman svo að liðaskipanin haldist út mótið. Þannig eru fjórir saman í holli, fyrstu tvö nöfnin gera þá eitt lið og síðustu tvö eru þá sér lið. Ef einhver vandamál verða ekki hika við að hringja í proshop eða senda tölvupóst á yngvi@gkg.is
Þar sem mótið er hjóna og para keppni, þá þarf að skilgreina betur hvað er átt við hvenær fólk er par.
Par þarf ekki endilega að vera kærustupar. Aðalatriðið er að parið séu góðir vinir, hafi skemmtun af því að spila golf saman.
Félagsmenn geta tekið með sér liðsfélaga sem er ekki innan klúbbsins.
Verðlaun:
1. sæti 2 x 25 þús króna inneign á Ecco skóm og glaðningur frá Ölgerðinni
2. sæti 2 x 10 þús króna inneign hjá N1 og glaðningur frá Ölgerðinni
3. sæti Glaðningur frá Ölgerðinni
Nándarverðlaun á öllum par 3 holum og annað höggið á 18. holu.
Hámarks forgjöf karla er 24 og hámarksforgjöf kvenna er 28.
Verð á kylfing kr. 5.800,- innifalið í verðinu er eðalkvöldmatur frá Mulligan teyminu, forréttur og aðalréttur.