Forkeppni bikars 2017 Miðvikudaginn 31. maí. Ræst verður út frá klukkan 11:00 til 13:00 og frá klukkan 16:00 til 18:00. Þátttökugjald er kr. 1.500. Leikin er punktakeppni með fullri forgjöf. 16 efstu í karlaflokki og 16 efstu í kvennaflokki komast áfram og leika útsláttarkeppni. Í útsláttarkeppninni er leikin holukeppni með forgjöf. Forgjöfin er þó takmörkuð við 7/8 af forgjafarmismun keppenda. Fyrsta umferðin í útsláttarkeppninni (16) skal leikin 7. júní klukkan 17:00. Önnur umferðin (8) skal leikin 21. júní klukkan 17:00. Þriðja umferðin (4) skal leikin 28. júní klukkan 17:00. Úrslitaleikirnir í karla- og kvennaflokki skulu leiknir 4. júlí klukkan 17:00. Bikarar verða afhentir á verðlaunaafhendingunni fyrir meistaramótið. Heimilt er að leika fyrir framangreindar dagsetningar ef báðir keppendur samþykkja. Ekki er heimilt að leika eftir framangreindar dagsetningar. Ef einungis annar aðilinn mætir á framangreindum dagsetningum fyrir hverja og eina umferð þá kemst viðkomandi áfram í næstu umferð. Ef hvorugur mætir til leiks verður dregið um það hvor aðilinn kemst áfram. Karlar með 28,5 og hærra í forgjöf geta valið að leika af rauðum teigum í forkeppninni (verða að láta vita áður en leikur hefst). Í útsláttarkeppninni verða allir karlar að leika af gulum teigum. Nánar um útsláttarkeppnina: Leikin er holukeppni. Keppendur finna út mismun á vallarforgjöf keppenda á leikdegi. Margfalda skal mismuninn með 7 og deila í með 8 sem er sú forgjöf sem sá keppandi sem er með hærri forgjöfina fær á hinn á keppandann. Dæmi: Keppandi A er með 20 í vallarforgjöf. Keppandi B er með 36 í vallarforgjöf. 36 - 20 = 16 sem er mismunurinn. 16 x 7 = 112 / 8 = 14 sem er sú forgjöf sem sá sem er með hærri forgjöfina fær á hinn keppandann. Forgjöfina fær viðkomandi keppandi á 14 erfiðustu holurnar á vellinum sbr. upplýsingar á skorkorti (eitt högg á þeim holum sem um ræðir). Hugsanlegt er að mismunur á forgjöf keppenda verði meiri en 18 eftir framangreindan útreikning. Ef niðurstaðan er t.d. 20 þá fær sá keppandi sem er með hærri forgjöfina tvö högg í forgjöf á tvær erfiðustu holurnar og eitt högg í forgjöf á hinar.
Forkeppni bikars 2017
Miðvikudaginn 31. maí.
Ræst verður út frá klukkan 11:00 til 13:00 og frá klukkan 16:00 til 18:00.
Þátttökugjald er kr. 1.500.
Leikin er punktakeppni með fullri forgjöf. 16 efstu í karlaflokki og 16 efstu í kvennaflokki komast áfram og leika útsláttarkeppni. Í útsláttarkeppninni er leikin holukeppni með forgjöf. Forgjöfin er þó takmörkuð við 7/8 af forgjafarmismun keppenda. Fyrsta umferðin í útsláttarkeppninni (16) skal leikin 7. júní klukkan 17:00. Önnur umferðin (8) skal leikin 21. júní klukkan 17:00. Þriðja umferðin (4) skal leikin 28. júní klukkan 17:00. Úrslitaleikirnir í karla- og kvennaflokki skulu leiknir 4. júlí klukkan 17:00. Bikarar verða afhentir á verðlaunaafhendingunni fyrir meistaramótið. Heimilt er að leika fyrir framangreindar dagsetningar ef báðir keppendur samþykkja. Ekki er heimilt að leika eftir framangreindar dagsetningar. Ef einungis annar aðilinn mætir á framangreindum dagsetningum fyrir hverja og eina umferð þá kemst viðkomandi áfram í næstu umferð. Ef hvorugur mætir til leiks verður dregið um það hvor aðilinn kemst áfram.
Karlar með 28,5 og hærra í forgjöf geta valið að leika af rauðum teigum í forkeppninni (verða að láta vita áður en leikur hefst). Í útsláttarkeppninni verða allir karlar að leika af gulum teigum.
Nánar um útsláttarkeppnina:
Leikin er holukeppni. Keppendur finna út mismun á vallarforgjöf keppenda á leikdegi. Margfalda skal mismuninn með 7 og deila í með 8 sem er sú forgjöf sem sá keppandi sem er með hærri forgjöfina fær á hinn á keppandann.
Dæmi:
Keppandi A er með 20 í vallarforgjöf.
Keppandi B er með 36 í vallarforgjöf.
36 - 20 = 16 sem er mismunurinn.
16 x 7 = 112 / 8 = 14 sem er sú forgjöf sem sá sem er með hærri forgjöfina fær á hinn keppandann. Forgjöfina fær viðkomandi keppandi á 14 erfiðustu holurnar á vellinum sbr. upplýsingar á skorkorti (eitt högg á þeim holum sem um ræðir). Hugsanlegt er að mismunur á forgjöf keppenda verði meiri en 18 eftir framangreindan útreikning. Ef niðurstaðan er t.d. 20 þá fær sá keppandi sem er með hærri forgjöfina tvö högg í forgjöf á tvær erfiðustu holurnar og eitt högg í forgjöf á hinar.