Mótanefnd GB GB-mótaröðin er punktakeppni með fullri forgjöf (karlar 36 og konur 42). Þannig að allir félagar GB eiga möguleika. Leikin verða 14 mót í sumar og SEX beztu mótin til verðlauna. Veitt verða verðlaun fyrir 6 efstu sætin. Frátekinn mótatími er frá 17.00-18.30. Ef einhverjir leikmenn vilja leika utan við þennan tímaramma er það heimilt, svo fremi sem hann hafi skrifara. Engu að síður þarf að skrá sig í síðustu rástíma og tilkynna skála um tilveru í mótinu. Og greiða mótsgjaldið. Golfherrar #5. Inn í GB mótaröð #8 er leikið fimmta mótið í mótaröð Golfherra en þar er leikinn höggleikur með forgjöf. Full forgjöf er 36. Fimm mót af tíu gilda til verðlauna. Keppnisskilmálar eru birtir fésbókarsíðu Golfherra. Af gefnu tilefni skal ítreka það að Golfherrar eru að keppa í GB-mótaröð #8 og greiða mótsgjald í því móti.