Lokamót NK kvenna verður haldið Þriðjudaginn 29. ágúst á Nesvellinum. Mæting er kl. 17.00 og ræst verður út kl. 17.30 á öllum teigum. Mótið er 9 holu punktakeppni keppt verður í tveimur forgjafarflokkum. Forgjafarflokkur I: vallarforgjöf 0 – 24 Forgjafarflokkur II: vallarforgjöf 25 - 42 Að móti loknu verður verðlaunaafhending og boðið upp á ljúfengan mat að hætti Hafsteins. Veitt verða verðlaun fyrir 1.– 3. sæti í hverjum flokki. Lengsta upphafshögg (þarf að vera á braut), Nándarverðlaun á 2. og 5. holu, (þarf ekki að vera á flöt). Annað högg á 8. braut Áslaugarbikarinn afhentur Að lokum verður dregið úr nokkrum skorkortum. Gjald fyrir mót og mat er 3.900 kr. Opnað verður fyrir skráningu á golf.is mánudaginn 21. ágúst. Ath. skráning á netinu er eingöngu til að raða í holl, ræst verður út af öllum teigum samtímis kl. 17.00. Einnig er hægt að skrá sig á skrifstofu klúbbsins í síma 561 1930 á milli kl. 10 og 16. Við þökkum fyrir þátttökuna í sumar og hlökkum til að sjá ykkur sem flestar í lokamótinu ! Bestu golfkveðjur, Kvennanefndin
Lokamót NK kvenna verður haldið Þriðjudaginn 29. ágúst á Nesvellinum.
Mæting er kl. 17.00 og ræst verður út kl. 17.30 á öllum teigum.
Mótið er 9 holu punktakeppni
keppt verður í tveimur forgjafarflokkum.
Forgjafarflokkur I: vallarforgjöf 0 – 24 Forgjafarflokkur II: vallarforgjöf 25 - 42
Að móti loknu verður verðlaunaafhending og boðið upp á ljúfengan mat að hætti Hafsteins.
Veitt verða verðlaun fyrir 1.– 3. sæti í hverjum flokki.
Lengsta upphafshögg (þarf að vera á braut),
Nándarverðlaun á 2. og 5. holu, (þarf ekki að vera á flöt).
Annað högg á 8. braut
Áslaugarbikarinn afhentur
Að lokum verður dregið úr nokkrum skorkortum.
Gjald fyrir mót og mat er 3.900 kr.
Opnað verður fyrir skráningu á golf.is mánudaginn 21. ágúst. Ath. skráning á netinu er eingöngu til að raða í holl, ræst verður út af öllum teigum samtímis kl. 17.00. Einnig er hægt að skrá sig á skrifstofu klúbbsins í síma 561 1930 á milli kl. 10 og 16.
Við þökkum fyrir þátttökuna í sumar og hlökkum til að sjá ykkur sem flestar í lokamótinu !
Bestu golfkveðjur,
Kvennanefndin