Opna Víkingsmótið hefur undanfarin ár verið eitt skemmtilegasta mót ársins hjá Dalbúa og stefnt er að því að svo verði einnig í ár. Glæsilegir vinningar mótsins eru í boði, eins verður dregið úr skorkortum fjöldi aukavinninga. Á mótinu er leikin punktakeppni með fullri forgjöf (36 karla og kvenna). Félagsmenn og gestir eru hvattir til að skrá sig tímanlega í mótið á www.golf.is eða í golfskálanum í Miðdal, en mögulega verður að takmarka skráningu við upphaf mótsins. Keppendur eru beðnir að skrá sig á rástíma, til að raða niður í keppnishópa (rástíminn gildir þó ekki). Mótið fer fram á velli Dalbúa í Miðdal laugardaginn 24. júní og hefst kl. 10:00. Keppendur skulu vera mættir kl. 9:15, en ræst verður út af öllum teigum samtímis kl. 10:00. - Frekari upplýsingar og fréttir af mótinu verður að finna á www.dalbui.is þegar nær dregur. 20 ára og yngri geta ekki tekið við áfengisverðlaunum nema í fylgd með forráðamanni. Verðlaun: Veittur er farandbikar fyrir 1. sæti í punktakeppni þeim sem er með flesta punkta. Einnig verða veittir verðlaunpeningar fyrir fyrstu fjögur sætin (flesta punkta óháð kyni). Einnig verða veitt fjölmörg (fljótandi) verðlaun frá Víking fyrir árangur í mótinu (lengsta upphafshögg karla og kvenna, upphafshögg næst holu á par 3 brautum) og loks verða aukaverðlaun dregin úr skorkortum.
Opna Víkingsmótið hefur undanfarin ár verið eitt skemmtilegasta mót ársins hjá Dalbúa og stefnt er að því að svo verði einnig í ár. Glæsilegir vinningar mótsins eru í boði, eins verður dregið úr skorkortum fjöldi aukavinninga.
Á mótinu er leikin punktakeppni með fullri forgjöf (36 karla og kvenna).
Félagsmenn og gestir eru hvattir til að skrá sig tímanlega í mótið á www.golf.is eða í golfskálanum í Miðdal, en mögulega verður að takmarka skráningu við upphaf mótsins. Keppendur eru beðnir að skrá sig á rástíma, til að raða niður í keppnishópa (rástíminn gildir þó ekki).
Mótið fer fram á velli Dalbúa í Miðdal laugardaginn 24. júní og hefst kl. 10:00. Keppendur skulu vera mættir kl. 9:15, en ræst verður út af öllum teigum samtímis kl. 10:00. - Frekari upplýsingar og fréttir af mótinu verður að finna á www.dalbui.is þegar nær dregur.
20 ára og yngri geta ekki tekið við áfengisverðlaunum nema í fylgd með forráðamanni.
Verðlaun:
Veittur er farandbikar fyrir 1. sæti í punktakeppni þeim sem er með flesta punkta.
Einnig verða veittir verðlaunpeningar fyrir fyrstu fjögur sætin (flesta punkta óháð kyni).
Einnig verða veitt fjölmörg (fljótandi) verðlaun frá Víking fyrir árangur í mótinu (lengsta upphafshögg karla og kvenna, upphafshögg næst holu á par 3 brautum) og loks verða aukaverðlaun dregin úr skorkortum.