Golfmót Félags hjúkrunarfræðinga verður haldið á golfvelli Golfklúbbs GKG, Leirdal í Garðabæ, fimmtudaginn 29. júní. Ræst er út frá klukkan 13:00 til 15:00 Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni. Veitt verða glæsileg verlaun fyrir þrjú efstu sætin og veitt verða sérstök makaverðlaun fyrir fyrsta sæti. Að auki eru nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins (bolti verður að enda á flötinni), verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 12. holu (bolti verður að enda á braut 12. holu) og dregið úr skorkortum (til þess að geta fengið úrdráttarvinning verður keppandi að vera viðstaddur úrdráttinn). Að móti loknu fer fram verlaunaafhending í fallegum veitingaskála GKG, Mulligan þar sem keppendur geta fengið sér veitingar og drykk á góðu verði.Skráning á golf.is hefst fimmtudaginn 1. júní kl. 10. Mótsgjald er 4.500 kr. og skal greiða í golfverslun GKG. Síðasti afskráningardagur er 28. júní kl. 15:30
Golfmót Félags hjúkrunarfræðinga verður haldið á golfvelli Golfklúbbs GKG, Leirdal í Garðabæ, fimmtudaginn 29. júní. Ræst er út frá klukkan 13:00 til 15:00 Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni.
Veitt verða glæsileg verlaun fyrir þrjú efstu sætin og veitt verða sérstök makaverðlaun fyrir fyrsta sæti.
Að auki eru nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins (bolti verður að enda á flötinni), verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 12. holu (bolti verður að enda á braut 12. holu) og dregið úr skorkortum (til þess að geta fengið úrdráttarvinning verður keppandi að vera viðstaddur úrdráttinn).
Að móti loknu fer fram verlaunaafhending í fallegum veitingaskála GKG, Mulligan þar sem keppendur geta fengið sér veitingar og drykk á góðu verði.Skráning á golf.is hefst fimmtudaginn 1. júní kl. 10. Mótsgjald er 4.500 kr. og skal greiða í golfverslun GKG. Síðasti afskráningardagur er 28. júní kl. 15:30