Golfveisla GS verður haldin á Hólmsvelli í Leiru laugardaginn 1. júlí. Mótið er liðakeppni og skipa tveir kylfingar hvert lið. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 36 lið (72 kylfinga). Þetta verður sannkölluð veisla með miklu golfi og gleði. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin auk nándarverðlauna og fyrir lengsta teighögg. Golfveislan er til styrktar unglinga- og afreksstarfi GS og rennur ágóðinn í söfnunarsjóð vegna æfingaferðar klúbbsins vorið 2018. Dagskrá:07.30 - Skálinn opnar og hafragrautur borinn á borð fyrir keppendur.08.30 - Fyrri ræsing: Leikin punktakeppni.12.30 - Tvírétta hádegishlaðborð, súpa og meðlæti.14.30 - Seinni ræsing: Leikið Greensome.19.30 - Verðlaunaafhending og mótsslit. Keppnisfyrirkomulag:Leiknar eru 36 holur. Í fyrri umferð er leikin punktakeppni og samanlagðir punktar hvers liðs lagðir saman, seinni umferð er leikið Greensome. Samanlagt skor liðs er því 2x punktakeppni + 1x Greensome. Hæsta leyfða forgjöf er 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Forgjöf í Greensome er reiknuð þannig: Lægri forgjöf kylfings x0,6 + hærri forgjöf x0,4.
Golfveisla GS verður haldin á Hólmsvelli í Leiru laugardaginn 1. júlí. Mótið er liðakeppni og skipa tveir kylfingar hvert lið. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 36 lið (72 kylfinga). Þetta verður sannkölluð veisla með miklu golfi og gleði. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin auk nándarverðlauna og fyrir lengsta teighögg.
Golfveislan er til styrktar unglinga- og afreksstarfi GS og rennur ágóðinn í söfnunarsjóð vegna æfingaferðar klúbbsins vorið 2018.
Dagskrá:07.30 - Skálinn opnar og hafragrautur borinn á borð fyrir keppendur.08.30 - Fyrri ræsing: Leikin punktakeppni.12.30 - Tvírétta hádegishlaðborð, súpa og meðlæti.14.30 - Seinni ræsing: Leikið Greensome.19.30 - Verðlaunaafhending og mótsslit.
Keppnisfyrirkomulag:Leiknar eru 36 holur. Í fyrri umferð er leikin punktakeppni og samanlagðir punktar hvers liðs lagðir saman, seinni umferð er leikið Greensome. Samanlagt skor liðs er því 2x punktakeppni + 1x Greensome.
Hæsta leyfða forgjöf er 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Forgjöf í Greensome er reiknuð þannig: Lægri forgjöf kylfings x0,6 + hærri forgjöf x0,4.