****** Nokkur sæti laus vegna forfalla ****** FRAM Open hefur í gegnum tíðina einkennst af gleði, glaumi og snilldartilþrifum lærðra sem leikinna. Mótið er opið öllum Frömurum og velunnurum félagsins. Stemmningin sem skapast hefur á FRAM Open gerir það að verkum að gefa mætti út ríkisábyrgð fyrir skemmtilegum félagsskap en mótið tókst frábærlega í fyrra enda mótið fullt með biðlista. FRAM Open 2017 fer fram á golfvellinum Öndverðarnesi föstudaginn 11. ágúst og hefst klukkan 13:00. Hyggilegt er að þátttakendur séu mættir á svæðið 45 mínútum fyrr. Ræst verður út á öllum teigum kl. 13:00. Keppendur eru hvattir til að mæta í í bláum Frampeysum eða merktir Fram á einn eða annan hátt. Skráning fer fram á netfanginu ludvik@fram.is Til að skráning teljist fullgild þarf að koma er: Nafn leikmanns Kennitala leikmanns Forgjöf leikmanns Ósk um að leika í holli með ? GSM sími allra þátttakenda Netfang allra þáttakenda Keppnisgjaldið er kr. 8.500.- og þarf að greiða við skráningu. Veitt verða eftirfarandi verðlaun: Nándarverðlaun á öllum par 3 brautum (verður að lenda á flöt) Lengsta drive karla og kvenna (verður að lenda á braut) Flottasti búningur 1.Sæti í höggleik karla og kvenna Fyrstu 3 sætin í punktakeppni karla og kvenna (ath sami einstaklingur getur ekki fengið verðlaun í höggleik og punktaleik) Dregið úr skorkortum hjá þeim sem ekki hafa unnið verðlaun og eru á staðnum við verðlauna afhendingu. Hámarks forgjöf karla er 24 (gulir) og 28 hjá konum (rauðir) Innifalið er mótsgjald, teiggjöf og matur eftir mót. Mikilvægt að allir skrái sig snemma því mótið var fullt í fyrra. Knattspyrnufélagið FRAM Nánari upplýsingar gefa Reynir í síma 664 3070 og Lúðvík í síma 533 5600
****** Nokkur sæti laus vegna forfalla ******
FRAM Open hefur í gegnum tíðina einkennst af gleði, glaumi og snilldartilþrifum lærðra sem leikinna. Mótið er opið öllum Frömurum og velunnurum félagsins. Stemmningin sem skapast hefur á FRAM Open gerir það að verkum að gefa mætti út ríkisábyrgð fyrir skemmtilegum félagsskap en mótið tókst frábærlega í fyrra enda mótið fullt með biðlista.
FRAM Open 2017 fer fram á golfvellinum Öndverðarnesi föstudaginn 11. ágúst og hefst klukkan 13:00. Hyggilegt er að þátttakendur séu mættir á svæðið 45 mínútum fyrr. Ræst verður út á öllum teigum kl. 13:00. Keppendur eru hvattir til að mæta í í bláum Frampeysum eða merktir Fram á einn eða annan hátt.
Skráning fer fram á netfanginu ludvik@fram.is
Til að skráning teljist fullgild þarf að koma er:
Keppnisgjaldið er kr. 8.500.- og þarf að greiða við skráningu.
Veitt verða eftirfarandi verðlaun:
Nándarverðlaun á öllum par 3 brautum (verður að lenda á flöt)
Lengsta drive karla og kvenna (verður að lenda á braut)
Flottasti búningur
1.Sæti í höggleik karla og kvenna
Fyrstu 3 sætin í punktakeppni karla og kvenna (ath sami einstaklingur getur ekki fengið verðlaun í höggleik og punktaleik)
Dregið úr skorkortum hjá þeim sem ekki hafa unnið verðlaun og eru á staðnum við verðlauna afhendingu.
Hámarks forgjöf karla er 24 (gulir) og 28 hjá konum (rauðir)
Innifalið er mótsgjald, teiggjöf og matur eftir mót.
Mikilvægt að allir skrái sig snemma því mótið var fullt í fyrra.
Knattspyrnufélagið FRAM
Nánari upplýsingar gefa Reynir í síma 664 3070 og Lúðvík í síma 533 5600