MidnightSun Open er Jónsmessumót GF! Auk teiggjafa fá kylfingar verður boðið upp á léttar veitingar við komu í skála. Aðalstyrktaraðili mótsins í ár er Ballantines á Íslandi. Ræst verður út á sama tíma, kl. 19.30 og leikið fram að miðnætti. Leikfyrirkomulag er Betri bolti m/forgjöf (punktakeppni), (24-28), tveir kylfingar skipa hvert lið. Tveir leikmenn leika saman í betri bolta. Báðir leika sínum bolta á hverri holu eins og um hefðbundinn höggleik eða punktakeppni sé að ræða. Hins vegar er aðeins betra skorið á hverri holu skráð á skorkortið og kemur þaðan heitið Betri bolti. Skemmtilegt fyrirkomulag þar sem vinir og fleiri nýta tækifærið til að spila gott golf í góðum hópi. VINSAMLEGAST ATHUGIÐ AÐ VAL Á RÁSTÍMUM ER EINGÖNGU TIL ÞESS ÆTLAÐ AÐ KYLFINGAR GETI RAÐAÐ SÉR SAMAN Í HOLL. RÆST VERÐUR ÚT Á SAMA TÍMA, KL. 19.30 Teiggjafir verða afhentar kylfingum áður en haldið er af stað og innifalið í verðinu er létt máltíð í mótslok. Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin, alls 6 kylfingar. Nándarverðlaun á öllum par 3 holunum. Einnig verður dregið úr skorkortum og verða vinningshafar að vera viðstaddir til að eiga rétt á þeim verðlaunum. Verð pr. mann er aðeins 5.700 kr. - innifalið teiggjafir, mótsgjald, léttar veitingar og létt máltíð.
MidnightSun Open er Jónsmessumót GF!
Auk teiggjafa fá kylfingar verður boðið upp á léttar veitingar við komu í skála.
Aðalstyrktaraðili mótsins í ár er Ballantines á Íslandi.
Ræst verður út á sama tíma, kl. 19.30 og leikið fram að miðnætti.
Leikfyrirkomulag er Betri bolti m/forgjöf (punktakeppni), (24-28), tveir kylfingar skipa hvert lið.
Tveir leikmenn leika saman í betri bolta. Báðir leika sínum bolta á hverri holu eins og um hefðbundinn höggleik eða punktakeppni sé að ræða. Hins vegar er aðeins betra skorið á hverri holu skráð á skorkortið og kemur þaðan heitið Betri bolti. Skemmtilegt fyrirkomulag þar sem vinir og fleiri nýta tækifærið til að spila gott golf í góðum hópi.
VINSAMLEGAST ATHUGIÐ AÐ VAL Á RÁSTÍMUM ER EINGÖNGU TIL ÞESS ÆTLAÐ AÐ KYLFINGAR GETI RAÐAÐ SÉR SAMAN Í HOLL. RÆST VERÐUR ÚT Á SAMA TÍMA, KL. 19.30
Teiggjafir verða afhentar kylfingum áður en haldið er af stað og innifalið í verðinu er létt máltíð í mótslok. Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin, alls 6 kylfingar. Nándarverðlaun á öllum par 3 holunum. Einnig verður dregið úr skorkortum og verða vinningshafar að vera viðstaddir til að eiga rétt á þeim verðlaunum.
Verð pr. mann er aðeins 5.700 kr. - innifalið teiggjafir, mótsgjald, léttar veitingar og létt máltíð.