Golfmót Oddfellowa á Akureyri Hið árlega golfmót Oddfellowstúknanna á Akureyri verður haldið á Jaðarsvelli sunnudaginn 16. september 2018 og hefst keppni kl. 09:00. Keppt verður í karla- og kvennaflokki með forgjöf og í sveitakeppni karla með forgjöf. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokki og fyrir sigur í sveitakeppninni, þar sem árangur fjögurra bestu kylfinga í hverri stúku er hafður til hliðsjónar. Jafnframt verða veitt nándarverðlaun á 18. braut/holu. Þátttökugjald er kr. 1.000.- og greiðist í golfskálanum. Ræst verður af 1. teig og fer fyrsta holl af stað kl. 09:00 og svo koll af kolli á 10 mínútna fresti. Skráning fer fram á golf.is. og lýkur laugardaginn 15. september. Golfnefnd Sjafnar.
Golfmót Oddfellowa á Akureyri
Hið árlega golfmót Oddfellowstúknanna á Akureyri verður haldið á Jaðarsvelli sunnudaginn 16. september 2018 og hefst keppni kl. 09:00. Keppt verður í karla- og kvennaflokki með forgjöf og í sveitakeppni karla með forgjöf. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokki og fyrir sigur í sveitakeppninni, þar sem árangur fjögurra bestu kylfinga í hverri stúku er hafður til hliðsjónar. Jafnframt verða veitt nándarverðlaun á 18. braut/holu. Þátttökugjald er kr. 1.000.- og greiðist í golfskálanum.
Ræst verður af 1. teig og fer fyrsta holl af stað kl. 09:00 og svo koll af kolli á 10 mínútna fresti. Skráning fer fram á golf.is. og lýkur laugardaginn 15. september.
Golfnefnd Sjafnar.