Landsmót Oddfellowa 2019 Kylfingar athugið að ræst er út af 1. teig og 10. teig og er hægt að skrá sig á hvorn teiginn sem er. Keppnisskilmálar:1. Mótið er 18 holu punktakeppni með og án forgjafar. Ekki er hægt að vinna til verðlauna í báðum flokkum.2. Keppt er í kvenna- og karlaflokki.3. Þátttökurétt hafa allir Oddfellowar og makar þeirra.4. Hámarksforgjöf er 32 hjá konum og 28 hjá körlum5. Sveitakeppni stúkna er felld inn í mótið. Þrír bestu með forgjöf telja í hverri sveit og eru veitt verðlaun fyrir sigur í bæði kvenna- og karlaflokki. Sveitir skulu skipaðar reglubræðrum eða systrum. Ekki er heimilt að skipa sveit með mökum reglusystkina.6. Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í kvenna- og karlaflokki - fyrir flesta punkta með og án forgjafar.7. Veitt eru verðlaun fyrir að vera næstur holu í upphafshöggi á 4. - 8. - 11. og 18. braut. Boltinn þarf ekki að vera á flöt til að fá mælingu.8. Veitt eru verðlaun fyrir lengsta teighögg kvenna á 6. braut og lengsta teighögg karla á 15. braut. Til að fá mælingu þarf boltinn að vera á braut.9. Verði tveir eða fleiri jafnir í verðlaunasæti þá skal reikna punkta á seinni 9. holur (10-18), þá 6.,3.,2., og 1. Verði leikmenn enn jafnir skal skal varpa hlutkesti. Verðlaunaafhending fer fram að loknu borðhaldi á lokahófi mótsins sem fram fer í Oddfellowhúsinu Sjafnarstíg 3. Ágætu Oddfellowsystur og bræður um allt land.Laugardaginn 24. ágúst 2019 verður spilað golf á Akureyri – við viljum fá þig með.Landsmót Oddfellowa í golfi fer fram á Akureyri þetta árið. Oddfellowstúkurnar nr. 2 Auður og nr. 2 Sjöfn sjá um allan undirbúning mótsins. Leiknar verða 18 holur, mótið fer fram á Jaðarsvelli, golfvelli Golfklúbbs Akureyrar og byrjað að spila kl. 07:30 eða kl. 12:30. Ræst verður út bæði á 1. teig og 10. teig.Skráning fer fram á golf.is og verður opnað fyrir skráningu þann 1.6.2019. Allar nánari upplýsingar varðandi skráninguna verður að finna á skráningarsíðunni.Mótsgjald er kr. 7.500 pr. einstakling og ber að greiða það inn á reikning 0302-13-700278 kt. eiganda 700970-0199 fyrir 18. ágúst til að halda sinni rásstöðu. Jafnframt er nauðsynlegt að senda kvittun í tölvupósti á netfangið landsmotIOOF2019@gmail.com og gefa upp nöfn þeirra sem greitt er fyrir ásamt stúkuheiti. Skráning verður tekin út hjá þeim sem ekki greiða fyrir 18. ágúst og rástímum úthlutað af biðlista. Ekki er hægt að afskrá sig eftir að mótsgjald hefur verið greitt.Þátttökurétt hafa allir Oddfellowar og þeirra makar. Mótið er punktakeppni með og án forgjafar og keppt bæði í kvenna- og karlaflokki. Sveitakeppni stúkna er felld inn í mótið.Lokahóf Landsmótsins verður í okkar glæsilega Oddfellowhúsi á Akureyri á laugardagskvöldið og hefst kl. 19:00. Skráning á lokahófið fer fram þannig að senda þarf tölvupóst á landsmotIOOF2019@gmail.com og gefa upp nöfn þeirra sem mæta. Makar eru að sjálfsögðu líka velkomnir þótt þeir taki ekki þátt í mótinu sjálfu. Kostnaður á hófið er kr. 4.500 pr. einstakling og greiða þarf um leið inn á reikning 0302-13-700278 kt. eiganda 700970-0199.Mótsgögn verða afhent í Oddfellowhúsinu Sjafnarstíg 3 á föstudeginum 23. ágúst milli kl. 18:00 og 21:00. Þá verður jafnframt hægt að skrá sig í matinn á lokahófinu og greiða fyrir hann.Akureyri 24.4.2019Mótsnefnd.
Landsmót Oddfellowa 2019
Kylfingar athugið að ræst er út af 1. teig og 10. teig og er hægt að skrá sig á hvorn teiginn sem er.
Keppnisskilmálar:1. Mótið er 18 holu punktakeppni með og án forgjafar. Ekki er hægt að vinna til verðlauna í báðum flokkum.2. Keppt er í kvenna- og karlaflokki.3. Þátttökurétt hafa allir Oddfellowar og makar þeirra.4. Hámarksforgjöf er 32 hjá konum og 28 hjá körlum5. Sveitakeppni stúkna er felld inn í mótið. Þrír bestu með forgjöf telja í hverri sveit og eru veitt verðlaun fyrir sigur í bæði kvenna- og karlaflokki. Sveitir skulu skipaðar reglubræðrum eða systrum. Ekki er heimilt að skipa sveit með mökum reglusystkina.6. Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í kvenna- og karlaflokki - fyrir flesta punkta með og án forgjafar.7. Veitt eru verðlaun fyrir að vera næstur holu í upphafshöggi á 4. - 8. - 11. og 18. braut. Boltinn þarf ekki að vera á flöt til að fá mælingu.8. Veitt eru verðlaun fyrir lengsta teighögg kvenna á 6. braut og lengsta teighögg karla á 15. braut. Til að fá mælingu þarf boltinn að vera á braut.9. Verði tveir eða fleiri jafnir í verðlaunasæti þá skal reikna punkta á seinni 9. holur (10-18), þá 6.,3.,2., og 1. Verði leikmenn enn jafnir skal skal varpa hlutkesti.
Verðlaunaafhending fer fram að loknu borðhaldi á lokahófi mótsins sem fram fer í Oddfellowhúsinu Sjafnarstíg 3.
Ágætu Oddfellowsystur og bræður um allt land.Laugardaginn 24. ágúst 2019 verður spilað golf á Akureyri – við viljum fá þig með.Landsmót Oddfellowa í golfi fer fram á Akureyri þetta árið. Oddfellowstúkurnar nr. 2 Auður og nr. 2 Sjöfn sjá um allan undirbúning mótsins. Leiknar verða 18 holur, mótið fer fram á Jaðarsvelli, golfvelli Golfklúbbs Akureyrar og byrjað að spila kl. 07:30 eða kl. 12:30. Ræst verður út bæði á 1. teig og 10. teig.Skráning fer fram á golf.is og verður opnað fyrir skráningu þann 1.6.2019. Allar nánari upplýsingar varðandi skráninguna verður að finna á skráningarsíðunni.Mótsgjald er kr. 7.500 pr. einstakling og ber að greiða það inn á reikning 0302-13-700278 kt. eiganda 700970-0199 fyrir 18. ágúst til að halda sinni rásstöðu. Jafnframt er nauðsynlegt að senda kvittun í tölvupósti á netfangið landsmotIOOF2019@gmail.com og gefa upp nöfn þeirra sem greitt er fyrir ásamt stúkuheiti. Skráning verður tekin út hjá þeim sem ekki greiða fyrir 18. ágúst og rástímum úthlutað af biðlista. Ekki er hægt að afskrá sig eftir að mótsgjald hefur verið greitt.Þátttökurétt hafa allir Oddfellowar og þeirra makar. Mótið er punktakeppni með og án forgjafar og keppt bæði í kvenna- og karlaflokki. Sveitakeppni stúkna er felld inn í mótið.Lokahóf Landsmótsins verður í okkar glæsilega Oddfellowhúsi á Akureyri á laugardagskvöldið og hefst kl. 19:00. Skráning á lokahófið fer fram þannig að senda þarf tölvupóst á landsmotIOOF2019@gmail.com og gefa upp nöfn þeirra sem mæta. Makar eru að sjálfsögðu líka velkomnir þótt þeir taki ekki þátt í mótinu sjálfu. Kostnaður á hófið er kr. 4.500 pr. einstakling og greiða þarf um leið inn á reikning 0302-13-700278 kt. eiganda 700970-0199.Mótsgögn verða afhent í Oddfellowhúsinu Sjafnarstíg 3 á föstudeginum 23. ágúst milli kl. 18:00 og 21:00. Þá verður jafnframt hægt að skrá sig í matinn á lokahófinu og greiða fyrir hann.Akureyri 24.4.2019Mótsnefnd.