Skilmálar - Holukeppni GKG 2018 Keppt er í tveimur flokkum, flokki karla og flokki kvenna. Fjöldi umferða fer eftir fjölda keppenda og verður fyllt upp í slétta umferð með hjásetu. Hver umferð stendur í tvær vikur fyrir utan 3. umferð sem lendir ofan í meistaramótinu og nær því yfir þrjár vikur. Dregið verður í fyrstu umferð sunnudaginn 3. júní. Öllum keppendum er boðið að vera viðstaddir útdráttinn. Leikfyrirkomulag: Aðeins kylfingar með gilda EGA forgjöf hafa keppnisrétt í holukeppninni. Hámarksforgjöf er 28. Leikmaður ræður af hvaða teig hann leikur og tekur forgjöf hans mið af því. Forgjöf nýtist í samræmi við forgjafarröð vallarins. Sé annar leikmaður t.d. með 15 í leikforgjöf en hinn 23, fær forgjafarhærri leikmaðurinn samtals 8 högg í leikforgjöf eða eitt högg á hverja holu 1-8 í forgjafarröð á meðan hinn leikmaðurinn hefur leikforgjöf 0. Leikmenn eru hvattir til að leita sér aðstoðar hjá mótstjóra við að finna út hvernig forgjöf reiknast í einstökum leikjum áður en leikur er hafinn. Í hverri umferð eru leiknar 18 holur. Leika skal til úrslita í hverjum leik. Verði leikmenn jafnir eftir 18 holu leik skal leikið áfram og fyrsta unnin hola ræður úrslitum. Keppendur koma sér saman um hvenær þeir kjósa að leika hverja umferð innan tímamarka hverrar umferðar. Dagsett tímatafla verður kynnt strax að loknum útdrætti. Geti keppandi ekki leikið eða mæti hann ekki til leiks á tilskildum tíma hefur hann tapað leik sínum. Mæti hvorugur keppenda til leiks fyrir lokafrest til að ljúka umferð falla þeir báðir úr keppninni. Ef leikmenn geta ekki komið sér saman um leiktíma, geta þeir leitað til mótstjóra um milligöngu. Sigurvegararnir tveir í holukeppninni hljóta titilinn Holumeistari GKG í sínum flokki og fylgir titlinum farandgripur. Einnig hljóta holumeistararnir verðlaunagrip til eignar. Verðlaun verða veitt á lokahófi bændaglímunnar í haust. Mótsstjóri árið 2018 er Sigurjón Sigurjónsson
Skilmálar - Holukeppni GKG 2018
Keppt er í tveimur flokkum, flokki karla og flokki kvenna. Fjöldi umferða fer eftir fjölda keppenda og verður fyllt upp í slétta umferð með hjásetu. Hver umferð stendur í tvær vikur fyrir utan 3. umferð sem lendir ofan í meistaramótinu og nær því yfir þrjár vikur.
Dregið verður í fyrstu umferð sunnudaginn 3. júní. Öllum keppendum er boðið að vera viðstaddir útdráttinn.
Leikfyrirkomulag: Aðeins kylfingar með gilda EGA forgjöf hafa keppnisrétt í holukeppninni. Hámarksforgjöf er 28. Leikmaður ræður af hvaða teig hann leikur og tekur forgjöf hans mið af því. Forgjöf nýtist í samræmi við forgjafarröð vallarins. Sé annar leikmaður t.d. með 15 í leikforgjöf en hinn 23, fær forgjafarhærri leikmaðurinn samtals 8 högg í leikforgjöf eða eitt högg á hverja holu 1-8 í forgjafarröð á meðan hinn leikmaðurinn hefur leikforgjöf 0. Leikmenn eru hvattir til að leita sér aðstoðar hjá mótstjóra við að finna út hvernig forgjöf reiknast í einstökum leikjum áður en leikur er hafinn.
Í hverri umferð eru leiknar 18 holur. Leika skal til úrslita í hverjum leik. Verði leikmenn jafnir eftir 18 holu leik skal leikið áfram og fyrsta unnin hola ræður úrslitum.
Keppendur koma sér saman um hvenær þeir kjósa að leika hverja umferð innan tímamarka hverrar umferðar. Dagsett tímatafla verður kynnt strax að loknum útdrætti. Geti keppandi ekki leikið eða mæti hann ekki til leiks á tilskildum tíma hefur hann tapað leik sínum. Mæti hvorugur keppenda til leiks fyrir lokafrest til að ljúka umferð falla þeir báðir úr keppninni. Ef leikmenn geta ekki komið sér saman um leiktíma, geta þeir leitað til mótstjóra um milligöngu.
Sigurvegararnir tveir í holukeppninni hljóta titilinn Holumeistari GKG í sínum flokki og fylgir titlinum farandgripur. Einnig hljóta holumeistararnir verðlaunagrip til eignar.
Verðlaun verða veitt á lokahófi bændaglímunnar í haust.
Mótsstjóri árið 2018 er Sigurjón Sigurjónsson